Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær hafin verður miðasala á leik Íslendinga gegn Króatíu í umspili um sæti á HM í knattspyrnu.

Samkvæmt upplýsingum frá Hilmari Þór Guðmundssyni, sem sér um fjölmiðla- og upplýsingamál hjá KSÍ, hefur ekki verið staðfest hvenær dagsins lekurinn á að fara fram, en ljóst er að leikurinn fer fram þann 15. nóvember „Við gerum ráð fyrir að leiktíminn verði staðfestur um helgina,“ segir Hilmar. Miðasalan ætti því að geta hafist snemma í næst viku.

Þegar Viðskiptablaðið hafði samband við KSÍ fyrr í vikunni var búist við því að miðasala gæti hafist rétt fyrir helgina.