Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,1% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:45 í 4.240 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins tvö félög, Landsbankinn [ LAIS ] og Glitnir [ GLB ] hafa hækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er aðeins 160 milljónir. Þar af eru rúmar 80 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], tæpar 45 milljónir með bréf í Glitni og rúmar 25 milljónir með bréf í Landsbankanum en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan stendur nánast í stað frá því í morgun og er gengisvísitalan nú 158,4 stig.