Icelandair flutti rúmlega 249 þúsund farþega í ágúst sl., sem er 18% fjölgun á milli ára og hefur félagið aldrei áður flutt jafnmarga farþega í ágústmánuði.

Heildarfjöldi farþega það sem af er ári nemur nú rúmlega 1,2 milljón sem er 20% aukning á milli ára. Rétt er að geta þess að í júlí sl. sló Icelandair farþegamet þegar félagið flutti rúmlega 254 þúsund farþega.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair á síðasta ári nam tæplega 1,5 milljón, samanborið við tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009.

Sætanýting Icelandair í ágúst var rúm 85% sem er 1% minna en á sama tíma í fyrra. Sætanýtingin fyrstu átta mánuði ársins er nú um 80% og hefur aukist um tæp 2% á milli ára.

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fjölgaði um 4% á milli ára í ágúst þegar félagið flutti rúmlega 38 þúsund farþega. Farþegafjöldi félagsins jókst lítillega á milli ára í vor en á sama tíma í fyrra var lítið flogið innanlands vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Farþegum Flugfélags Íslands hefur fjölgað um 4% á milli ára það sem af er þessu ári.

Aukin nýting hótelherbergja en nýting flugflotans í leiguverkefnum dregst saman

Nýting flugflota í eigu Icelandair Group dróst saman á milli ára í ágúst eða um tæp 12%. Hér er átt við vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic, sem nýttar eru til leiguverkefna á vegum samstæðunnar. Nýting flugflotans jókst um 1% á milli ára á síðasta ári en hefur dregist saman um tæp 2% það sem af er ári.

Fraktflug á vegum samstæðunnar jókst um 16% á milli ára í ágúst. Samdrátturinn í fraktflugi á síðasta ári nam um 4% en aukningin á fyrstu átta mánuðum þessa árs nemur 9% á milli ára.

Þá jókst nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar um 10% á milli ára í ágúst og hefur þannig aukist um 5% það sem af er ári.