Icelandair flutti rúmlega 165.400 þúsund farþega í maí sl., sem er 22% fjölgun á milli ára í maímánuði. Framboð félagsins í mánuðinum jókst um 17% á milli ára. Sætanýting Icelandair í maí var 82% og jókst um 5% á milli ára. Þá hefur sætanýtingin aukist um 4% á milli ára það sem af er þessu ári.

Þá hefur félagið flutt um 607 þúsund farþega það sem af er þessu ári, sem er 19% aukning á milli ára. Á sama tíma hefur framboð félagsins aukist um 14%.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair í fyrra nam tæplega 1,75 milljón farþega, samanborið við tæplega 1,5 milljón farþega árið 2010 og tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009. Farþegafjöldi félagsins jókst þannig um 18% á milli ára  fyrra.

Í tilkynningu til Kauphallar kemur fram að fyrrnefndur farþegafjöldi er metfjöldi farþega og besta sætanýting félagsins í maí mánuði frá upphafi. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 31%. Aukningin á ferðamannamarkaðinum til Íslands nam 26%, þar af jókst fjöldi ferðmanna frá N-Ameríku um 58%.  Fjöldi ferðamanna frá N-Ameríku í maí hefur meira en tvöfaldast síðustu 2 ár, einkum vegna nýrra fluga til borganna Denver, Washington og Seattle eftir því sem fram kemur í tilkynningunni.

Fjölgun í innanlandsflugi og Grænlandsflugi

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fjölgaði um 9% á milli ára í maí þegar félagið flutti rúmlega 29 þúsund farþega. Framboð félagsins stóð í stað á milli ára í maí. Sætanýtingin nam um 70% og jókst um 5,6% á milli ára og hefur þá aukist um 2% það sem af er ári. Mestu munar um aukið framboð af flugi til Grænlands.

Flugfélag Íslands flutti um 353 þúsund farþega á síðasta ári sem þýðir 3% fjölgun farþega á milli ára. Sætanýting félagsins jókst um 1% á milli ára í fyrra.

Nýting flugflota sem nýttur er til útleigu en er í eigu Icelandair Group dróst saman um 6,4% á milli ára í maí og hefur þannig dregist saman um 7% á milli ára það sem af er þessu ári. Hér er átt við vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic. Þetta má að hluta til rekja til þess að fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra.

Fraktflug á vegum Icelandair Cargo jókst um 31% á milli ára í maí og hefur aukist um 22% á milli ára það sem af er þessu ári.

Nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar stóð að mestu stað á milli ára í en hefur aukist um 6,4% það sem af er ári. Framboð hótelherbergja á vegum samstæðunnar jókst um 32% á milli ára í maí og hefur aukist um 18% það sem af er ári.