Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið var 806 milljónir króna og jókst um 18% milli vikna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Velta á fasteignamarkaði var í vikunni þar á undan um 685 milljónir króna en meðalvelta frá áramótum er tæpir 2,2 milljarðar.

Í vikunni þar á undan hafði velta á fasteignamarkaði ekki verið jafn lítil á einni viku í það minnsta fimm ár (ef undan er skilin vikan milli jóla og nýárs árið 2003).

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 34 í vikunni sem leið en 27 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali hefur 67 samningum verið þinglýst á viku frá áramótum.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 23,7 milljónir króna og minnkar um rúmar tvær milljónir milli vikna. Þetta er nokkuð undir meðaltali en meðalupphæð á hvern samning frá áramótum eru tæpar 32 milljón krónur.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 77% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.