MMR hefur birt niðurstöður úr könnun þar sem athugað var fylgi stjórnmálaflkoka og stuðningur við ríkisstjórnina á tímabilinu 16. til 21. apríl 2015.

Píratar bæta við sig miklu fylgi frá síðustu könnun sem lauk þann 8. apríl síðastliðinn. Mældist fylgi flokksins nú 32% en var 27,4% síðast. Sjálfstæðisflokkurinn mælist næststærstur með 21,9% fylgi og dregst það saman um eitt prósent milli kannana.

Fylgi Framsóknarflokksins mælist nú 10,8% borið saman við 13,1% síðast. Fylgi Vinstri grænna eykst um eitt prósentustig og mælist nú 10,8%. Þá er Samfylkingin með 10,7% fylgi borið saman við 11,4% síðast og Björt framtíð með 8,3% samanborið við 10,3% síðast. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 30,7% en var 35,3% í síðustu mælingu.

Hægt er að skoða niðurstöður könnunarinnar hér.