Velta á fasteignamarkaði dróst saman um 17% í vikunni sem leið en hafði í vikunni á undan aukist nokkuð eða um 51% milli vikna samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 64% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið voru 57 en voru 77 í vikunni þar áður. Þinglýstir samningar eru að meðaltali 75 á viku frá áramótun.

Í vikunni sem leið nam veltan tæplega 1,9 milljörðum króna en í fyrri viku nam veltan um 2,2 milljörðum króna. Fyrri vika var sértök að því leyti að samningum fjölgaði töluvert milli vikna en meðalvelta á hvern samning lækkaði nokkuð. Það hækkar þó örlítið þessa vikuna en samningum fækkar eins og fyrr segir.

Meðalvelta á hvern samning tæpar 33 milljónir króna og eykst frá vikunni á undan þegar meðalvelta á hvern samning um 29 milljónir. Meðaltal á hvern samning frá áramótum er 33 milljónir króna.