Icelandair flutti rúmlega 211 þúsund farþega í ágúst sl., sem er 12% fjölgun á milli ára í ágúst. Þá hefur farþegum Icelandair fjölgað um 11% á milli ára fyrstu átta mánuði ársins.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group sem sendar eru Kauphöllinni en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair nemur rúmlega 1 milljón það sem af er ári, samanborið við rúma 917 þúsund farþega á sama tíma í fyrra.

Fjölgunin fyrstu átta mánuði ársins telst athyglisvert í ljósi þess að í apríl sl. fækkaði farþegum um 17% á milli ára. Þá mátti helst rekja samdráttinn til eldsumbrotanna í Eyjafjallajökli en sem kunnugt er þurfti félagið að aðlaga leiðarkerfi sitt talsvert vegna þess.

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, heldur áfram að fækka. Í ágúst sl. flutti félagið um tæplega 37 þúsund farþega sem þýðir 6% fækkun farþega á milli ára í ágúst. Þá hefur farþegum Flugfélags Íslands fækkað um 9% á milli ára fyrstu átta mánuði ársins. Í lok ágúst hafði félagið flutt rúmlega 233 þúsund farþega, samanborið við tæplega 256 þúsund farþega á sama tíma í fyrra.

Fraktflug á vegum samstæðunnar heldur einnig áfram að dragast saman. Í ágúst dróst fraktflug saman um 4% á milli ára en þannig nemur samdrátturinn í fraktflugi um 2% það sem af er ári.

Þá hefur nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar dregist örlítið saman á milli ára. Í ágúst sl. voru um 24 þúsund gistinætur seldar, samanborið við rúmlega 26 þúsund gistinætur árið áður, sem þýðir 7% fækkun á milli ára. Framboð hótelherbergja stendur þó í stað á milli ára. Sala hótelherbergja í eigu samstæðunnar hefur þannig lækkað um 1% á milli ára það sem af er ári.