Gengi hlutabréfa í Icelandair hélt áfram að hækka í dag. Hækkun bréfanna nam 2,18% og nam velta með bréf í félaginu 653 milljónum króna í dag. Íslenska úrvalsvísitalan OMX16 hækkaði um 0,72 prósent í dag.

Reginn hækkaði um 0,65%, Marel 0,55% og Eimskip um 0,54%. VÍS hækkaði um 0,45% og Hagar um 0,44%.

Tvö félög lækkuðu í Kauphöllinni í dag. Það voru TM sem lækkaði um 0,34% og Össur sem lækkaði um 0,29%.