Úrvalsvísitala kauphallarinnar lækkaði um 0,64% í viðskiptum dagsins.

Mest hækkaði verð á hlutabréfum í Icelandair eða um 0,91%. Næst mest hækkun var á bréfum Skeljungs eða 0,33% hækkun. Bréf þessara tveggja félaga voru þau einu sem hækkuðu í viðskiptum dagsins.

Eins og undanfarna daga var mest velta með bréf Marels en hún var 257 milljónir króna. Heildarveltan í kauphöllinni í dag nam rétt rúmum 1,2 milljörðum króna.