Verð á hlutabréfum í Heimavöllum hækkaði mest í Kauphöllinni í dag eða um 4,62% í 155 milljóna króna viðskiptum. Næst mest hækkaði HB Grandi eða um 2,13% í 21 milljóna króna viðskiptum.

Mest lækkun var hjá Icelandair en félagið lækkaði um 2,08% í 63 milljóna króna viðskiptum. Næst mest lækkaði Eik fasteignafélag um 0,46% í 43 milljóna króna viðskiptum.

Heildarvelta á Aðalmarkaði hlutabréfaviðskipta nam 797 milljónum en þar af var mest velta með bréf Arion banka eða 161 milljón. Íslenska úrvalsvísitalan hækkaði um 0,08% í viðskiptum dagsins.