Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,24% í dag og endaði í 1906,69 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 1,40% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Símans, eða um 1,29% í viðskiptum sem hljóða upp á 119 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 3,13 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,53% í 119 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair er þá 38,2 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Marel, eða um 0,21% í 133 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Marel er 242,5 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa N1 um 0,75% í viðskiptum upp á 53 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar þá 66,2 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 896 milljónir króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 6,3 milljarðar króna.