Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,37% í dag og endaði í 1951,60 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 3,79% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,04% í viðskiptum sem hljóða upp á 1 milljarð króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 38,9 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Marel, eða um 0,38% í 731 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Marel er þá 262 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Símans, eða um 1,63% í 161 milljónar króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Símans er 3,01 króna. Þá lækkaði gengi bréfa Haga um 0,81% í viðskiptum upp á 159 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 48,7 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 3,1 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 10,6 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í dag í 3,1 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 8,6 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,4% í 2,7 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,4% í 5,9 milljarða króna viðskiptum.