Skuldatryggingarálag ríkissjóðs nálgast nú það áhættuálag sem lagt var á erlend skuldabréf ríkissjóðs í útboðinu sem auglýst var í gær. Samkvæmt upplýsingum á Keldunni var álagið skráð 277 punktar í morgun en í gær hækkaði það úr tæpum 200 punktum í 265 punkta.

Eins og fram hefur komið var álag í áðurnefndu útboði 320 punktar ofan á áhættulausa vexti.