Úrvalsvísitalan ICEX-15 hækkaði um 0,85% í dag og var í lok dagsins 5.350,98 stig. Hlutabréf Kaupþings banka hækkuðu mest eða um 1,91% og var síðasta viðskiptagengi 695 krónur á hlut.

Það sem af er árinu hafa hlutabréf Kaupþings banka hækkað um 58,7% og er markaðsvirði bankans komið í 461,9 milljarða króna.
Mest lækkuðu bréf í Jarðborunum eða um 1,21%
Alls námu viðskipti með hlutabréf um 19,2 milljörðum.