Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins hefur einn framkvæmdastjóri enn lagt inn uppsögn sína hjá Nýja Kaupþingi. Það er Þórólfur Jónsson sem hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra fyrirtækjaráðgjafar hjá bankanum.

Þetta er enn eitt skarðið sem höggvið er í stöður yfirmanna hjá bankanum en 20 framkvæmdastjórar hafa hætt síðan nýi bankinn tók til starfa.

Þannig munu einungis vera eftir tveir framkvæmdastjórar af því skipuriti sem var kynnt þegar nýi bankinn tók til starfa í haust.