Gengi tæknirisans Apple hefur lækkað um 1,36% frá opnun markaða kl 13 á íslenskum tíma.

Hlutabréf vestanhafs hafa almennt lækkað vegna frétta af veikari efnahags í Evrópu og Kína.

Einnig kann lækkun Apple í dag að skýrast af tilkynningu frá stærsta keppinaut bandaríska tæknisrisans um nýjan Samsung síma sem frumsýndur verður á fimmtudag.

Sérfræðingar telja nýja símann vera nær Iphone síma Apple en eldri gerðir Samsung símanna.

Gengi Apple hefur lækkað um 10% síðasta mánuðinn. Lækkunin frá áramótum nemur 21,37%.