Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,52% í dag og endaði í 1,783 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 36,08%.

Í dag hækkaði gengi bréfa Eimskipa um 0,39% í 149 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa Eimskipa var það eina sem hækkaði í dag. Bréf Sjóvár og HB Granda stóðu þó í stað í viðskiptum sem hljóðuðu samtals upp á 3 milljónir króna.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair um 0,45% í 608 milljóna króna viðskiptum. Þar á eftir koma Reitir, en gengi bréfa fyrirtækisins lækkaði um 1,46% í viðskiptum upp á 118 milljónir króna. Gengi bréfa Nýherja lækkaði svo um 4,14% í viðskiptum sem hljóðuðu aðeins upp á 550 þúsund krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmir 1,3 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 7,7 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,5% í dag í 1,2 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,6% í dag í 6,6 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,6% í 2,5 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,4% í 4,1 milljarða króna viðskiptum.