Hlutabréf lækkuðu í Asíu í dag og líkt og í gær voru það helst flutningafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins ásamt hrávöruframleiðendum en vísitala hrávöruverðs lækkaði um 3,5% í dag að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

MSCI Kyrrahafs vísitalan lækkaði um 0,6% en vísitalan lækkaði um 2,5% í gær. Hún hefur nú lækkað um 25% það sem af er árinu.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 0,4%, í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 2,2% en í Kína stóð CSI 300 vísitalan í stað við lok markaða.

Í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 1,4% og í Ástralíu lækkaði S&P 200 vísitalan um 1,5%.