Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0.15% í dag og endaði í 1,838 stigum. Markaðurinn hefur hækkað um 40.22% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Marel um 0.88% í 750 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa Símans hækkaðu um 0.57% í viðskiptum sem hljóðuðu upp á rúmlega 258 milljónir króna. Þess ber að geta að gengi bréfa Icelandair stóð í stað eftir 1,13 milljarða króna viðskipti.

Mest lækkaði gengi bréfa N1 um 0.23% í 944 milljóna króna viðskiptum. Þar á eftir kemur Vodafone, en gengi bréfa fyrirtækisins lækkaði um 2,02% í viðskiptum upp á 151 milljón króna. Gengi bréfa TM lækkaði einnig um 1.08% í 106 milljón króna viðskiptum.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmir 4,31 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 33,3 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 3,9 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,8% í dag í 30,1 milljarða viðskiptum.

Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,5% í 5,2 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 1,4% í 25 milljarða króna viðskiptum.