Atvinnuleysi í Bandaríkjunum mældsins 5,6% í desember samkvæmt opinberum tölum þar í landi og minnkar um 0,2% milli mánaða. BBC News greinir frá þessu.

Þar kemur fram að 252 þúsund ný störf hafi bæst við á bandarískan vinnumarkað í mánuðinum. Þá hefur atvinnuleysi ekki mælst minna í landinu síðan í júní 2008.