Velta á fasteignamarkaði hélt áfram að dragast saman í vikunni sem leið samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Velta á fasteignamarkaði var í vikunni tæpar 950 milljónir króna en var í síðustu viku tæpir 1,2 milljarðar. Veltan dregst því saman um 21% milli vikna en hafði í vikunni á undan dregist saman um 16% milli vikna.

Meðalvelta á viku frá áramótum er tæpir 2,3 milljarðar.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Þetta er aðeins í annað sinn á þessu ári sem vikuvelta á fasteignamarkaði er undir einum milljarði en síðast gerðist það vikuna 13. – 19. júní. Þar áður hafði veltan ekki farið undir milljarð frá því milli jóla og nýárs árið 2004.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 35 í vikunni sem leið en 36 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Rétt er að taka fram að 70 samningum hefur verið þinglýst að meðaltali á viku frá áramótum.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 26,9 milljónir króna og lækkar um tæpar fimm milljónir milli vikna en meðalvelta á hvern samning frá áramótum eru 32,2 milljónir.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 84% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.