Enn er nokkur óvissa um hvað forsetinn mun gera en hann hefur talað um að hér sé um mun hagstæðara samkomulag að ræða en hið fyrra. Hann hefur hins vegar einnig sagt að það sé Alþingis að sannfæra almenning í landinu um ágæti samningsins og að hann muni horfa til þess við ákvörðun um undirritun hvort enn sé gjá á milli þings og þjóðar í þessu máli. Fyrri samningi vísaði forsetinn eftirminnilega í þjóðaratkvæðagreiðslu í upphafi síðastliðins árs þar sem honum var hafnað.

Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka um Icesave-samkomulagið sem var afgreitt frá fjárlaganefnd í gær til þriðju umræðu á Alþingi.

Segir að samþykkt Icesave-samkomulagsins muni marka tímamót í endurreisn íslensks efnahagslífs eftir hrun. „Samþykkt hins nýja samkomulags mun að öllum líkindum hafa jákvæð áhrif á aðgang íslenskra aðila að erlendu fjármagni og lækka áhættuálag á íslenskar fjáreignir. Lánshæfismatsfyrirtækin hafa gefið það út að samþykkt mun styrkja lánshæfiseinkunn ríkissjóðs og mun það hafa sín áhrif á aðgengi að erlendu fjármagni og þau kjör sem þar bjóðast.

Hefur Moody's t.d. lýst því yfir að fyrirtækið muni hækka lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands verði samkomulagið samþykkt, en skuldabréf íslenska ríkisins í erlendri og innlendri mynt til lengri tíma hafa verið með lægstu einkunn sem gefin er í fjárfestingarflokki sem merkir að ef hún yrði lækkuð myndi hún falla niður í spákaupmennskuflokk (e. Junk Bond). Horfur um einkunn ríkissjóðs eru neikvæðar hjá öllum stóru matsfyrirtækjunum þremur. Þá má geta þess að í síðustu skýrslu sendinefndar AGS var þess getið að hinn nýi Icesave-samningur tengdist vilja íslenskra stjórnvalda til að mæta skilyrðum sumra lánveitenda í efnahagsáætlun sjóðsins og stjórnvalda,“ segir í Morgunkorni.