Enn ein fyrirtakan var í meiðyrðamáli Jóns Steinars Gunnlaugssonar, fyrrverandi dómara við Hæstarétt, gegn háskólaprófessornum og frambjóðandanum Þorvaldi Gylfasyni í fyrirtöku þess í dag. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem liðir málsins eru til meðferðar þar en fyrr í mánuðinum var kröfu Þorvaldar um frávísun í því hafnað. Í morgun var m.a. rætt um það hvernig aðalmeðferð á að fara fram í málinu. Aðalmeðferðin er ekki komin á dagskrá héraðsdóms.
Meiðyrðamálið snýst í stuttu máli um það að Jón Steinar taldi Þorvald vega að sér í grein sem sá síðarnefndi ritaði fyrir háskólann í Munchen í Þýskalandi og birtist í mars í fyrra. Í greininni var m.a. fjalla um ákvörðun Hæstaréttar þegar kosning til stjórnlagaþings var ógilt.
Ekki særður holundarsári
Í greininni segir í umorðun Jóns Steinars að „einn af dómurum Hæstaréttar, staðfastur flokksmaður áður en hann var skipaður dómari og þá tekinn fram fyrir þrjá hæfari umsækjendur samkvæmt áliti nefndar sem mat umsækjendur, hafi lagt drög að einni af kærunum sem Hæstiréttur, undir forystu sama dómara, nýtti sem átyllu til að ógilda kosningarnar. Ekki hafa þó verið færðar sönnur á þetta.“
Þegar vb.is ræddi við Jón Steinar um málið í desember í fyrra margt neikvætt hafa verið sagt um sig í gegnum tíðina og sé hann ekki særður holundarsáir yfir því. Hann vill hins vegar að Þorvaldur beri ábyrgð á ummælum sínum:
„Við hljótum alltaf að spyrja okkur að því hvort menn geti farið fram með hvaða ásakanir sem er án þess að bera á því ábyrgð. Ég tel að þegar hlut á dómari við Hæstarétt sem er að gegna einu viðkvæmasta starfi í ríkiskerfinu og menn víkja orðum að honum með þeim hætti að þeir dylgja um það að hann hafi brotið gegn starfsskyldum sínum þannig að refsivert væri, ef satt væri, þá tel ég rétt að menn sem slíkt gera, sérstaklega ef þeir eru prófessorar við háskóla, beri ábyrgð á því. Þeir geta ekki haft neitt við það að athuga sjálfir. Menn sem viðhafa slík ummæli hljóta að bera ábyrgð á þeim. Ég trúi ekki öðru en að maðurinn hafi sagt þetta undir þeim formerkjum,“ segir Jón Steinar í samtali við vb.is í fyrra.