Velta húsgagnaverslana dróst saman um 3,5% í febrúar frá sama mánuði fyrir ári á föstu verðlagi en jókst um 2% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 6% hærra í febrúar síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna jókst um tæp 15% í febrúar síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi.

Öll önnur verslun jókst í febrúar ef miðað er við sama tímabil í fyrra og á föstu verðlagi. Velta í dagvöruverslun jókst um 4% á föstu verðlagi í febrúar miðað við sama mánuð í fyrra, sala áfengis jókst um 1%, fataverslun jókst um 8%, velta skóverslunar jókst um 7% og sala á raftækjum jókst um 11%.