Enn eru slegin met í kortaveltu erlendra ferðamanna. Í júní síðastliðnum greiddu erlendir ferðamenn fjórðungi meira með kortum sínum hér á landi en í júní í fyrra. Þetta kemur fram í frétt á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar .

Mest aukning var í ýmsum skipulögðum ferðum eins og hvalaskoðun, ferðum með leiðsögn og öðrum  tegundum pakkaferða. Í þeim flokki var 64% aukning og greiddu ferðamenn með kortum sínum 2,5  milljarða í júní. En ekki eru meðtaldar greiðslur með reiðufé eða það sem greitt var gegnum milliliði áður en til Íslands var komið.

Erlendir ferðamenn greiddu hæstu upphæðina eins og endranær fyrir gistingu og nam erlend kortavelta gististaða rúmlega 2,9 milljörðum kr. sem er 16% hærri upphæð en í júní í fyrra.

Erlend kortavelta bílaleiga jókst um 61% í júní síðastliðnum frá júní í fyrra og nam í síðasta mánuði 1,2 milljörðum kr.

Veitingahús nutu einnig góðs af auknum ferðamannastraumi því erlend greiðslukortavelta í þeim geira jókst um 26% og nam 1,4 milljarði kr. í júní.

Erlendir ferðamenn keyptu í verslunum með kortum sínum fyrir 2 milljarða kr. í júní sem er 14% hærri upphæð en í júní í fyrra. Þar af var kortavelta í dagvöruverslunum 429 millj. kr. sem er 33% aukning frá júní í fyrra. Erlendir ferðamenn tóku einnig út reiðufé með kortum sínum í hraðbönkum fyrir  17% hærri upphæð en í júní í fyrra, eða fyrir 1,7 milljarða kr.

Mikill munur er á kortaveltu eftir þjóðernum sem að einhverju leyti skýrist af því hversu algeng kortanotkun er í hverju landi. Ferðamenn frá Sviss, Rússlandi og Spáni keyptu fyrir hæstu upphæðir með greiðslukortum ef upphæðum er deilt á hvern ferðamann sem hingað kom í júní eftir þjóðerni.