Krónan heldur áfram að styrkjast en eins og fram kom á vb.is í síðustu viku var hún um miðja viku sterkari en hún hafði verið síðan snemma í maí. Í dag skráði Seðlabankinn gengisvísitöluna í 217,075 stig sem er 0,42% styrking miðað við föstudag. Svo lág hefur gengisvísitalan ekki verið síðan 14. apríl sl. þegar hún var 216,88 stig.'