Hard Rock Cafe á Íslandi tapaði 257 milljónum króna á síðasta rekstrarári, en árið 2017 nam tap félagsins 395 milljónum króna. Rekstrartekjur námu 780 milljónum króna og drógust lítillega saman frá fyrra ári, eða um 20 milljónir króna. Rekstrargjöld námu 1.020 milljónum króna og drógust þau saman um 154 milljónir króna frá árinu áður. Þetta kemur fram í ársreikning HRC Ísland, sem er rekstrarfélag Hard Rock á Íslandi.

Eignir veitingastaðarins námu 672 milljónum króna í lok síðasta árs og drógust saman um tæplega 100 milljónir frá fyrra ári. Þá var eigið fé var neikvætt um 637 milljónir.