Enn er unnið að útfærslu á samstarfi Vodafone og Nova, en fyrr á árinu veitti Samkeppniseftirlitið samþykki sitt fyrir rekstri samrekstrarfélags félaganna tveggja, að vissum skilyrðum uppfylltum. Boðað hafði verið að tíðinda væri að vænta fyrir lok annars ársfjórðungs.
Í tilkynningu segir að af þeim sökum skuli upplýst að félögin vinni enn að útfærslu samstarfsins á grundvelli fyrirmæla í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Nauðsynlegt hafi reynst að uppfæra og endurskoða samningsdrög á milli félaganna sem hafi verið nokkuð verkefni en góður framgangur náðst að undanförnu.
Þá hafi Samkeppniseftirlitið fyrir sitt leyti samþykkt tillögu félaganna um skipan óháðs kunnáttumanns, sem hafa muni eftirlit með framkvæmd ákvörðunar eftirlitsins.