Louise Armitstead, dálkahöfundur breska blaðsins Sunday Times, telur FL Group vera að undirbúa yfirtöku á easyJet, þrátt fyrir að stofnandi félagsins, Stelios Haji-Ioannou, hafi lýst því yfir að hann hafi ekki áhuga á að selja 40% hlut sinn og fjölskyldu sinnar.

Armitstead segir einnig að annað íslenskt félag, Avion Group, geti verið líklegt til þess að taka yfir easyJet. Armitstead segist ekki viss um að FL Group sé ekki að undirbúa yfirtöku og segir einnig að Avion, sem er stjórnað af Magnúsi Þorsteinssyni, hafi hljóðlega verið að byggja upp flugveldi og því líklegt til þess að hafa áhuga á easyJet.