Gengisvísitalan er nú 160,7 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,1% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,2% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 161 stig en var í gær 160,4 stig.

Krónan hefur nú veikst um 1,4% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 85,2 krónum, Evran í 123,2 krónum og Sterlingspundið í 151,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 76,8 krónum, japanskt jen í 0,79 krónum og danska krónan í 16,5 krónum.