Gengisvísitalan er nú 165,9 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,0% frá opnun í morgun og um 1,4% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 165,8 stig en var á föstudaginn 163,6 stig.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,3 krónum, Evran í 129,7 krónum og Sterlingspundið í 163,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 79,7 krónum, japanskt jen í 0,8 krónum og danska krónan í 17,4 krónum.