Gengisvísitalan er nú 168,7 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,4% frá opnun í morgun en um 2,6% frá opinberu gengi Seðlabankans á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 168,9 stig og slær úr met gærdagsins þegar opinbert gengi var 164,3 stig.

Krónan veiktist um 3% á mörkuðum í gær og hefur frá áramótum veikst um 28%.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Evran nú í 131,1 krónu, Bandaríkjadalur í 84,3 krónum og Sterlingspundið í 165,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 81 krónu, japanskt jen í 0,78 krónum og danska krónan í 17,6 krónum.