Kauphöllin hefur upplýsingar um að enn eigi sé verslað með bréf Kaupþings, þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið hafi tekið yfir reksturinn, ef marka má frétt Morgunblaðsins.
Morgunblaðið segist hafa heimildir fyrir því að bréf í Kaupþingi hafi gengið kaupum og sölum á genginu átta en það var tæplega 700 skömmu áður en bankinn var tekinn yfir.
Kauphöllin hefur ekki upplýsingar um viðskipti með bréf Glitnis eða Landsbankans né upplýsingar um umfang viðskiptanna, að því er segir í fréttinni.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir í samtali við Morgunblaðið að margvíslegar ástæður geta legið að baki þessum viðskiptum.
„Það er verið að loka samningum sem gerðir höfðu verið, jafnvel fyrir þó nokkru, og það er ekkert óeðlilegt við það. Önnur skýring sem við höfum heyrt af er að eitthvað muni hugsanlega koma út úr málshöfðun vegna aðgerða breskra yfirvalda gegn bankanum og því séu einhverjir að veðja á að hugsanlega muni verðmæti bréfa í bankanum aukast við það,“ segir Þórður við Morgunblaðið.