Gengisvísitalan er nú 158,6 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,15% frá opnun markaða í morgun en 0,7% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 158,7 stig en var í gær 157,5 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 123,3 krónum, Bandaríkjadalur í 79,9 krónum og Sterlingspundið í 155 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,6 krónum og japanskt jen í 0,76 krónum.