Íslensk hönnun og íslenskt skyr verða í fyrirrúmi á biðsvæði fyrir skiptifarþega á leið milli Evrópu og Norður-Ameríku í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli í vetur. Isavia auglýsti eftir aðilum til að reka veitingasölu eða sérverslun frá byrjun desember til loka maí og voru Epal og Ísey skyr með bestu umsóknirnar að mati valnefndar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Isavia.

Í verslun Epal verður í boði fjölbreytt úrval hönnunarvara þar sem sérstök áhersla verður á íslenska hönnun, en Epal hefur áður rekið hönnunarverslun í flugstöðinni. Ísey skyr mun bjóða upp á íslenskt skyr og skyrrétti og er þetta í fyrsta sinn sem rekin er veitingasala með sérstakri áherslu á íslenskt skyr í flugstöðinni. Áætlað er að Epal og Ísey skyr hefji rekstur í byrjun desember.

„Epal er rótgróið fyrirtæki sem rekur fjórar aðrar verslanir í Reykjavík. Ísey skyr er vörumerki í eigu Mjólkursamsölunnar og Boozt barsins og verður veitingasalan rekin af Lagardére sem rekur nokkra aðra veitingastaði í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Isavia auglýsti eftir rekstraraðilum í rýmin og lýstu átta yfir áhuga en þrír skiluðu inn formlegu tilboði. Sérstök valnefnd hafði það hlutverk að leggja mat á tilboðin. Þetta er í annað sinn sem Isavia auglýsir eftir rekstraraðilum í tímabundin rými en fyrirkomulagið er þekkt á flugvöllum erlendis. Í sumar og fram til enda nóvember 2017 rekur veitingastaðurinn Sbarro tímabundna veitingasölu í rýminu. Isavia gerir ráð fyrir að bjóða rýmin til leigu að nýju næsta vor,“