Þýski raftækjaframleiðandinn EPCOS hefur keypt ítalska fyrirtækið Becromal SpA, og eignast þar með 60% hlut í Becromal á Íslandi. 40% hlutur verður áfram í eigu íslenska orkufyrirtækisins Strokkur Energy.

Útflutningstekjur af starfsemi Becromal á Íslandi verða um 110 milljónir Bandaríkjadala í fyrsta áfanga.

„EPCOS er afar sterkt alþjóðlegt fyrirtæki og hefur um árabil verið eitt af stærstu og öflugustu tæknifyrirtækjunum Þýskalands,“ segir Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri Strokks. Hann bætir því við að þar sem EPCOS hefur um nokkra hríð verið einn af helstu viðskiptavinum Becromal hafi stjórnendum EPCOS þótt Becromal vera álitlegur fjárfestingakostur.

Þrátt fyrir þessar breytingar á eignaraðild Becromal á Íslandi mun það á engan hátt tefja fyrir uppbyggingu aflþynnuverksmiðju í Krossanesi á Akureyri, sem hefja á framleiðslu árið 2009. Enn fremur munu ráðningar starfsfólks verksmiðjunnar halda áfram með eðlilegum hætti.

„Uppbygging verksmiðjunnar gengur ákaflega vel og íslenski verktakinn Húsbygg hefur unnið þrekvirki undanfarnar vikur. Áætlanir gera ráð fyrir að verksmiðjan taki til starfa um áramótin og það hefur ekkert breyst,“ segir Eyþór.

Hjá EPCOS starfa um 20.000 manns á 20 mismunandi starfsstöðvum út um allan heim. Verksmiðjur og hönnunarstöðvar fyrirtækisins má meðal annars finna í Evrópu, Norður og Suður Ameríku og Asíu. Tekjur fyrirtækisins á síðasta ári voru 1.4 milljarðar evra eða 210 milljarðar íslenskra króna.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Becromal á Íslandi.