Það vakti talsverða athygli að ELKO auglýsti á dögunum Nissan Leaf rafbíla til sölu og afgreiðslu fyrir áhugasama viðskiptavini.
Umboðsaðili Nissan á Íslandi er bílaumboðið BL og því er ljóst að samkeppni verður um sölu á Leaf rafbílnum.
ELKO auglýsir að rafbílarnir séu seldir með þriggja ára framleiðsluábyrgð frá Tryggingamiðstöðinni.
Þar að auki er hægt að fá tveggja ára ábyrgð til viðbótar á góðum kjörum eins og segir á heimasíðu ELKO.
Nánar er fjallað um málið í Bílar sem fylgdi Viðskiptablaðinu á fimmtudaginn. Áskrifendur geta nálgast blaðið HÉR .