Það er erfitt að verða sér úti um besta bjór ársins 2012, sem valinn var af vefsíðunni ratebeer.com. Bjórinn Westvleteren 12, sem bruggaður er í Westvleteren munkaklaustrinu í norðanverðri Belgíu er nefnilega ekki seldur hvar sem er. Hringja þarf í bjórsímann í klaustrinu á fyrirfram ákveðnum tímum, gefa upp númeraplötu á bíl og mæta á þeim tíma sem gefinn er upp. Hver viðskiptavinur getur aðeins keypt tvo kassa og bannað er að endurselja vörurnar.