Whittard of Chelsea, verslanakeðja í eigu Baugs á, að sögn breska blaðsins Telegraph, í miklum rekstrarerfiðleikum vegna síminnkandi sölu.

Samkvæmt blaðinu eru enn í gangi viðræður um mögulega sölu verslanakeðjunnar. Ekkert liggur þó fyrir í þeim efnum.

Saga verslanakeðjunnar nær aftur til ársins 1886 en í  búðunum er selt te, kaffi og ýmislegt því tengt. Nú eru 130 verslanir í keðjunni.

Baugur keypti Whittard of Chelsea árið 2005.