Hluti erfingja Sigurðar K. Hjaltested  fyrrum ábúenda á Vatnsenda hafa stefnt Kópavogsbæ. Er aðalkrafa stefnenda sú að Kópavogsbær greiði þeim kr. 74,8 milljarða króna vegna eignarnáms á landi í Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007. Fjárhæð varakröfu er kr. 47.558.500.000.

Í tilkynningu Kópavogsbæjar til Kauphallar Íslands segir að málið verði þingfest 5. nóvember. Kópavogsbær mun taka til varna í málinu og telur að stefnendur eigi enga kröfu á hendur bænum. Í tilkynningunni er tekið fram að þær kröfur sem stefnendur setja fram hafi ekki verið kynntar áður fyrir Kópavogsbæ.

Ágreiningur aðila snýst m.a. um það hvort Kópavogsbæ hafi verið heimilt að ráðstafa eignarnámsbótum árin 1992, 1998, 2000 og 2007 til þáverandi þinglýstra eigenda Vatnsenda. Eignarnámin fóru fram á grundvelli heimildar frá opinberum stofnunum og ráðherra.