Bilun varð í greiðslumiðlunarkerfi Reiknistofu bankanna sem olli því að erfiðlega hefur gengið fyrir neytendur að greiða með debetkortum nú eftir hádegi.

Samkvæmt upplýsingum sem VB.is hefur frá Reiknistofu bankanna er unnið að viðgerð. VB.is hefur ekki heimildir fyrir því á þessari stundu hvað olli biluninni.