WOW-air var eina flugfélagið af níu, sem bjóða uppá áætlunarflug frá Keflavíkurflugvelli allt árið um kring, sem skilaði inn tilboði í báða hluta útboðs á farmiðum fyrir starfsmenn ráðuneytanna sem lauk í síðustu viku. Þetta kemur fram á heimasíðu turista.is í dag.

Í viðtali fréttasíðunnar við talskonu SAS, kom fram að erfitt hafi verið að koma til móts við kröfurnar sem gerðar voru í útboðslýsingunni, t.d. um sólarhrings neyðarþjónustu á íslensku. Þess ber þó að geta að Ríkiskaup gerðu síðar breytingu á þessari kröfu og heimiluðu þá einnig símaþjónustu á ensku.

Félag atvinnurekenda hefur lengi lagt áherslu á að haldið yrði útboð á farmiðum en það var síðast gert í ársbyrjun 2011. „Við fögnum því út af fyrir sig að útboð skuli hafa farið fram eftir rúmlega þriggja ára samfelld brot ríkisins á lögunum um opinber innkaup. Hins vegar var ýmislegt sérkennilegt við það hvernig útboðinu var stillt upp í upphafi. Til að byrja með var til dæmis gerð sú krafa að til að mega bjóða fast verð í flug til helztu áfangastaða yrðu flugfélög að fljúga til þeirra allra; Brussel, Parísar og Kaupmannahafnar. Það hefði útilokað aðra en Icelandair. Eftir að gerðar voru athugasemdir við þetta, var fallið frá þessu skilyrði," segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.

Að mati Ólafs þá eru útboðslýsingar í opinberum útboðum oft þannig úr garði gerðar að þær þrengja hópinn sem getur tekið þátt og þar af leiðandi nýtast ekki kostir samkeppninnar til að ná sem hagstæðustu verði fyrir skattgreiðendur.

„Það má líka setja spurningarmerki við að ríkið vilji bara fá fast verð í þrjár flugleiðir, en biðji um afsláttarkjör á öðrum. Svipuð leið var farin í síðasta flugmiðaútboði árið 2011. Kærunefnd útboðsmála komst þá að þeirri niðurstöðu að hafna hefði átt tilboði Icelandair í viðskiptin, þar sem það væri augljóslega mun óhagstæðara en tilboð Iceland Express. Það segir sig sjálft að það er hagstæðara fyrir skattgreiðendur að ríkið fái tilboð um fast, lágt verð á tilteknum flugleiðum en að í boði sé afsláttur frá háu verði." segir Ólafur jafnframt.