Erla Tryggvadóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri Vátryggingafélags Íslands (VÍS). Erla tekur við starfinu af Óskari Hrafni Þorvaldssyni, sem lét af störfum til að taka við þjálfun meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Breiðablik. Hjá VÍS mun hún miðla upplýsingum um félagið til fjölmiðla og markaðsaðila og bera ábyrgð á framfylgd samfélagsstefnu félagsins. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Erla hefur meðal annars verið starfandi framkvæmdastjóri hjá Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð, viðskiptastjóri hjá Brandenburg auglýsingastofu og verkefnastjóri á samskipta- og markaðssviði hjá Straumi fjárfestingarbanka. Þá starfaði hún lengi hjá RÚV, bæði í sjónvarpi og útvarpi.

Nú síðast starfaði hún hjá Stekk, fjárfestingarfélagi. Erla stundar nú MBA nám við Háskólann í Reykjavík og lýkur prófi næsta vor. Hún er jafnframt með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá HR og Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS). Erla er með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands.

„Ég hlakka mikið til að takast á við ný og spennandi verkefni hjá þessu öfluga félagi. VÍS er á öruggri siglingu til móts við nýja tíma,“ er haft eftir Erlu í tilkynningunni. Hún hefur nú þegar hafið störf.