Erla Sylvía Guðjónsdóttir hefur verið ráðin í starf mannauðsstjóra Valitor og ber hún ábyrgð á mannauðsmálum félagsins á alþjóðavísu. Greint er frá ráðningu hennar í fréttatilkynningu.

Erla Sylvía hefur starfað hjá Valitor frá árinu 2018 sem sérfræðingur á mannauðssviði Valitor. Frá 2014-2018 starfaði hún sem gæða- og mannauðsstjóri hjá Bílaumboðinu Öskju og frá 2009-2014 sem fjármálaráðgjafi hjá Umboðsmanni skuldara.

Erla Sylvía er með M.Sc. gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands, B.S. gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla og á einnig að baki nám í mannauðsstjórnun við CBS í Kaupmannahöfn. Þá hefur Erla Sylvía lokið stjórnendamarkþjálfun (e. Executive Coaching) frá Háskólanum í Reykjavík sem og jógakennaranámi.