Kortavelta erlendra ferðamanna hefur dregist ört saman undanfarna daga og vikur líkt og viðbúið var, vegna áhrifa útbreiðslu kórónuveirunnar Covid 19 á ferðahegðun og eftirspurn almennt.

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir erlenda kortaveltu sem Rannsóknarsetur verslunarinnar hefur tekið saman sést samdráttur, dag fyrir dag í mars í hlutfalli við sama dag marsmánaðar í fyrra. Síðastliðinn föstudag nam erlend kortavelta einungis 23% þess sem hún nam á sama degi í fyrra.

Kortavelta í mars - samanburður 2019 og 2020
Kortavelta í mars - samanburður 2019 og 2020
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Samkvæmt tilkynningu frá setrinu er þó erfiðara  að lesa í innlenda kortaveltu Íslendinga, en miðað við fyrstu þrjár vikur mars var veltan dagana 1. til 7. mars 2020, 23% hærri en á sama tíma í fyrra. Í annarri viku mars var veltan 82% af veltu síðasta árs.

En á þeim tíma féllu inn dagarnir þar sem samkomubann var kynnt. Velta í dagvöruverslun var ríflega tvöfalt meiri dagana 12. og 13. mars en sömu daga í fyrra en þá daga fjölluðu fjölmiðlar um að landinn væri að hamstra mat. Þó er tekið fram að um bráðabirgðatölur er að ræða en hægt verði að leggja frekara mat á veltu eftir flokkum þegar marsmánuður verður gerður upp.

Samanburður milli vikna í mars í innlendri kortaveltu
Samanburður milli vikna í mars í innlendri kortaveltu
© Aðsend mynd (AÐSEND)