Fimm íslenskum vísisjóðum upp á samtals rúmlega 40 milljarða var komið á laggirnar í ár og hefur fjármögnunarumhverfi íslenskra sprotafyrirtækja líklega sjaldan verið öflugra. Heildarfjármögnun sérhæfðra íslenskra vísisjóða nemur um 70 milljörðum króna en miðað við að þegar hefur verið fjárfest fyrir um 30 milljarða af þeirri fjárhæð er núverandi fjárfestingargeta þeirra því um 40 milljarðar.

Samkvæmt skýrslu Northstack um fjárfestingar í sprotafyrirtækjum á árinu 2021 sóttu íslensk sprotafyrirtæki fjármagn sem nemur 20,7 milljöðrum íslenskra króna, en það er samdráttur um tæp 28 prósent á milli ára. Tekið skal fram að skýrslan tekur ekki til styrki eða fjármagnanir undir 75 milljónum íslenskra króna.

Erlendir fjárfestar voru áberandi í fjárfestingum síðasta árs. Sé litið til fjölda fjárfestinga voru erlendir fjárfestar þátttakendur í 54% þeirra, en 46% innihéldu einungis íslenska fjárfesta. Sé horft til fjármagns sem var safnað, þá komu erlendir fjárfestar að 89% fjármagnanna. Það þýðir ekki að 89% fjármagnsins hafi komið erlendis frá, heldur að fjármögnunarlotur sem samsvöruðu 89% heildarfjármagns innihéldu erlenda fjárfesta.

Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér .