Verkefnum Advania, sérstaklega á erlendri grundu, hefur fjölgað verulega á síðustu misserum, í kjölfar þess að erlendir fjárfestar eignuðust meirihluta í fyrirtækinu.

Í Fréttablaðinu í dag er haft eftir Gesti G. Gestssyni, forstjóra Advania, að fyrirtækið muni bæta við sig um tuttugu nýjum starfsmönnum vegna góðrar verkefnastöðu, bæði á Íslandi en ekki síst erlendis.

Síðasta sumar réðst Advania í hlutafjáraukningu og þá eignaðist sænska félagið Adinvest 51% hlutafjár. Gestur segir að í kjölfarið hafi erlend verkefni aukist og markaðsstarf á erlendri grundu sömuleiðis.