Erlendar eignir Seðlabanka Íslands námu 505 milljörðum króna í lok maí samanborið við 491 milljarð í lok apríl 2009.

Erlendar skuldir Seðlabanka Íslands voru 275 milljarðar í lok maí en voru 295 milljarðar í lok apríl 2009.

Þetta kemur fram í Hagtíðindum Seðlabankans en í mars s.l. var gerð sú breyting að telja með eign erlendra aðila á innstæðubréfum og viðskiptaskuld í íslenskum krónum við erlend greiðslumiðlunarfyrirtæki. Sú breyting nær aftur til sept. 2008.

Jafnframt var gerð sú breyting í mars 2009 að staða og hreyfingar eru nú reiknaðar á miðgengi í stað kaupgengis og nær sú breyting einnig aftur til sept. 2008. Þann 19. nóvember 2008 samþykkti Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn að veita Íslendingum lán, hluti af því kom til greiðslu í nóvember 2008.