Erlendir aðilar eru taldir eiga 64,7 milljarða af þeim 75 milljarða króna innstæðubréfum sem Seðlabankinn gaf út á fyrri hluta árs 2008.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands en í dag verða birt á heimasíðu Seðlabankans bráðabirgðayfirlit um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Þá kemur fram að bein fjárfesting útlendinga hér á landi lækkaði um 107,6 milljarða króna sem stafar, að sögn Seðlabankans, að mestu af lánahreyfingum sem tengjast tilfærslu fyrirtækja á milli landa en bein fjárfesting Íslendinga erlendis hækkaði um 10,8 milljarða króna.

Verðbréfaeign erlendra fjárfesta á innlendum skuldabréfum hækkaði um 286,5 milljarða króna samkvæmt tilkynningunni.

„Skekkjuliður í ársfjórðungsuppgjörinu er stór en jákvæður að þessu sinni og fer nærri að hann vegi upp neikvæðan skekkjulið síðustu fjögurra ársfjórðungsuppgjöra. Reynsla Seðlabankans er sú að skekkjuliður skýrist oftast af ónógum upplýsingum um fjármagnshreyfingar,“ segir í tilkynningunni.

Hrein staða við útlönd var neikvæð um 2.095 milljarða króna í lok annars ársfjórðungs og versnaði um 27 milljarða í ársfjórðungnum. Endurmat á hreinni stöðu í lok síðasta árs leiddi til 196 milljarða króna bata.

Þá er rétt að taka fram að í tilkynningu Seðlabankans er greint frá því að heimtur á skýrslum frá þeim aðilum sem ber að upplýsa bankann um erlend viðskipti hafa batnað að undanförnu en samt er nokkuð um að þær berist seint.

„Slíkt hamlar vinnslu við uppgjör greiðslujafnaðar og erlendrar stöðu og dregur úr nákvæmni og upplýsingagildi uppgjöranna. Hvetur Seðlabankinn þá sem skila eiga skýrslum um erlend fjármagnsviðskipti og stöðu eigna og skulda til að gera enn betur,“ segir í tilkynningunni.